Swix F4 Universal Glide Wax

3.490 kr.

Availability: Á lager

- +

F4 Glidewax Liquid er fjölhæft fljótandi rennivax sem tryggir að þú sért fullkomlega undirbúin(n) rétt áður en þú heldur í brekkurnar.
Á annarri hlið flöskunnar er svampur til að bera vaxið á, og á hinni hliðinni er filtpúði til að pússa.
Handhæg flaska sem auðvelt er að hafa í vasanum á meðan þú ert á skíðum.
Berðu þunnt lag yfir renniflötinn. Láttu þorna í um það bil 2 mínútur. Ljúktu svo með því að pússa með filtpúðanum. Þegar skíðatímabilinu lýkur skaltu bera F4 á stálkantana áður en þú geymir skíðin eða snjóbrettið. Það kemur í veg fyrir að stálkantarnir ryðgi í geymslu.

  • Alhliða vax fyrir öll hitastig

  • Þróað fyrir alpagreinar í skíðaíþróttum

  • Kemur í veg fyrir ryð á stálköntum

  • Auðveld notkun

  • Án flúors

Vörunúmer: f4-23-100 Vöruflokkar: ,