Skilmálar

Almennt

Sunbudin.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Kennitala: 550269-0319
VSK-númer: 1274

Afhending vöru

Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Súnbúðin ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Súnbúðinni og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.

Skilafrestur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og að henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum/upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

Sé nánari upplýsinga þörf mun seljandi hafa samband við kaupanda.

Varan er endurgreidd að fullu við fyrsta tækifæri og alltaf innan 14 daga eftir að henni er skilað. Vilji kaupandi skipta vörunni í aðra vöru sem er til á lager er jafnframt hægt að óska eftir nýrri sendingu. Kostnaður við endursendingu og nýja sendingu vöru vegna skipta á ógallaðri vöru er á ábyrgð og kostnað viðskiptavinar. Ef viðskiptavinur endursendir og skilar vöru án þess að greiða fyrir sendingarkostnaðinn verður hann dreginn frá keyptri upphæð. Ef vara reynist vera gölluð skal kaupandi tilkynna seljanda um gallann. Eftir að seljandi hefur staðfest að um galla er að ræða fær kaupandi afhenta nýja vöru. Sé vara ekki til fær kaupandi vöruna endurgreidda eða aðra vöru í staðinn.

Útsöluvörum fæst hvorki skilað né skipt.

Netverð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun. Með sama hætti gilda tilboð í verslun ekki alltaf í vefverslun.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.