Veiðileyfasalan hafin í Norðfjarðará fyrir sumarið 2024
Erum búin að opna fyrir bókanir í Norðfjarðará sumarið 2024. Nú er um að gera að bóka sem fyrst þar sem mikil eftirspurn er í ánna. Sumarið 2023 var mjög gott veiðisumar í ánni sem er aðeins 3ja stanga á. Veiðileyfin er hægt að bóka hjá okkur í Veiðiflugunni á veidiflugan@veidiflugan.is eða í síma 4741400 og í Súnbúðinni Neskaupstað á sunbudin@sunbudin.is eða í síma 4771133, greiða verður fyrir leyfin um leið og bókað er ásamt skilagjaldi en skilagjaldið fæst endurgreitt við skil á veiðiskýrslu.
Verðin fyrir sumarið 2024 verða sem hér segir.
17.06 – 08.07
Heill dagur. 8.900 kr.
Hálfur dagur. 6.300 kr.
09.07 – 09.09
Heill dagur. 19.800 kr.
Hálfur dagur. 12,200 kr.
10.09 – 20.09
Heill dagur. 11,400 kr.
Hálfur dagur. 7.700 kr.
Skilagjald leggst á ofangreind verð að upphæð 1000 kr. á hverja skýrslu og fæst það endurgreitt við skil á veiðiskýrslum í Veiðifluguna eða Súnbúðina.
Daglegur veiðitími frá 07 – 13 og 15 – 21,
Kort af ánni má nálgast á þessari slóð.
Hér er hægt að fylgjast með veiðitölum úr Norðfjarðará: https://veidibok.hafro.is/is/veidibok/svaedi-yfirlit/5ea113cf-1fbf-4090-b5fb-802924627c54
Hér er hægt að sjá hvað er laust í ánni hverju sinni ATH að þessi linkur/síða er uppfærð 1 sinni á sólahring og er því ekki 100% örugglega rétt fyrr en búið er að hafa samband við okkur,
https://docs.google.com/spreadsheets/d/17JXJfxqMCyDbFMa0xw1KcnGf7d5BCrLWK_bET1L7bz0/edit?usp=sharing