Sala Veiðileyfa Í Norðfjarðará Hafin Fyrir 2023!

Veiðileyfasalan Hafin Í Norðfjarðará Fyrir Sumarið 2023

Erum búin að opna fyrir bókanir í Norðfjarðará sumarið 2023. Nú er um að gera að bóka sem fyrst þar sem mikil eftirspurn er í ánna.Sumarið 2022 var þokkalegt veiðisumar í ánni sem er aðeins 3ja stanga á.Veiðileyfin er hægt að bóka hjá okkur í Veiðiflugunni í síma 4741400 og í Fjarðasport á Neskaupstað í síma 4771133, einnig er hægt að senda okkur tölvupóst á veidiflugan@veidiflugan.is og fjardasport@fjardasport.is , greiða verður fyrir leyfin um leið og bókað er ásamt skilagjaldi sem fæst endurgeitt þegar veiðiskýrslum er skilað í Veiðifluguna eða Fjarðasport.

Verðin fyrir sumarið 2023 verða sem hér segir.

15.06 – 08.07
Heill dagur.         8300 kr.
Hálfur dagur.       5900 kr.

09.07 – 09.09
Heill dagur.        18.400 kr.
Hálfur dagur.       11.300 kr.

10.09 – 20.09
Heill dagur.          10.600 kr.
Hálfur dagur.        7100 kr.

Skilagjald leggst á ofangreind verð að upphæð 1000 kr. á hverja skýrslu og fæst það endurgreitt við skil á veiðiskýrslum í Veiðiflugunni eða Fjarðasport.
Daglegur veiðitími frá 07 – 13 og 15 – 21,
Kort af ánni má nálgast á þessari slóð.

Hér er hægt að fylgjast með veiðitölum úr Norðfjarðará:
https://veidibok.hafogvatn.is/veidibok/app#view=veidibok_veidisvaedi=261_fra=01.06.2021_til=30.09.2021